Prjónagraff á Blönduósi
Sú hugmynd hefur komið upp að skreyta ljósastaura á Blönduósi með svo kölluðu prjónagraffi fyrir Húnavöku sem haldin verður helgina 16. - 19. júlí. Samkvæmt Húnahorninu, heimasíðu Húnvetninga nær og fjær, er ætlunin að hittast og hafa fyrsta vinnufund í Kvennaskólanum miðvikudagskvöldið 10. júní kl. 20 og prjóna og hekla saman.
Á fyrsta vinnufundinn kemur hin danska Jette Braun, en hún er í starfsnámi í Kvennaskólanum og ætlar að deila reynslu sinni af prjónagraffi.
„Þetta er öllum opið og gaman væri að sjá sem flesta. Gott væri að þeir sem vilja vera með skoðuðu í skúffur og skápa til að athuga hvort þar leynist einhver handavinna sem mætti nota," segir á síðunni.
Hversu margir staurar verða skreyttist fer eftir magni handavinnu og fjölda þáttakenda. Bæjarbúar og nærsveitungar eru hvattir til að mæta og taka þátt í að lífga upp á ljósastaura bæjarins í sumar.