Prúttsala í nytjamarkaðnum á Hofsós
feykir.is
Skagafjörður
14.08.2015
kl. 13.31
Prúttsala verður í nytjamarkaðnum í Grunnskólanum á Hofsósi um helgina. Er þetta síðasta opnunarhelgi sumarsins, en markaðurinn hefur verið opinn um helgar í sumar líkt og undanfarin sumur.
Að sögn Lindu Halls, sem stendur fyrir markaðnum, rennur ágóðinn til Grunnskólans. Opið verður til kl. 18 í dag, föstudag, frá kl. 11-18 á morgun laugardag og frá kl 11-19 á sunnudag. Eru allir hvattir til að líta við, prútta og gera góð kaup.