Raddir fólksins í Skagafirði á Skjalasafnið

Börn Kára Steinssonar frá Neðra-Ási, þau Valgeir og Guðný Kárabörn  afhentu nú á dögunum Héraðsskjalasafni Skagfirðinga til varðveislu tölvudisk með hljóðupptökum Kára, en um áratuga skeið safnaði hann „Röddum fólksins“ í Skagafirði og víðar. Kennir þar margra grasa, en geta má að það mun taka um 112 klukkustundir að spila allt efni sem á disknum er.

Efnið var flutt af segulböndum á tölvutækt form af Tónlistarsafni Íslands. Nutu afkomendurnir stuðnings Menningarráðs Norðurlands vestra við að koma efninu á varanlegra form. Upptökurnar eru af ýmsum toga; viðtöl, söngur, kveðskapur og fleira. Safn Kára er að mörgu leyti einstakt og er Héraðsskjalasafninu mikill fengur að fá að varðveita þetta safn. Nú hefst næsti þáttur verkefnisins en hann er að skrá efnið og gera það aðgengilegt fyrir almenning.

Fleiri fréttir