Ráðgjafi í málefnum fatlaðra í Húnaþingi vestra

Ráðgjafi í málefnum fatlaðra fullorðinna einstaklinga í Húnaþingi vestra er nú starfsmaður Sveitarfélagsins Húnaþings vestra, frá og með 1. janúar 2012. Þetta kom fram á fundi félagsmálaráðs Húnaþings vestra sem haldinn var miðvikudaginn 25. janúar sl.  

Til þessa hefur ráðgjafi frá félags- og skólaþjónustu Austur-Húnavatnssýslu þjónustað þá einstaklinga en nú er öll þjónusta við fatlaða einstaklinga í Húnaþingi vestra er þjónustuð af starfsmönnum fræðslu- og velferðarsviðs sveitarfélagsins, sem og öll önnur fræðslu- og velferðarþjónusta við íbúa Húnaþings vestra.


Fleiri fréttir