Ráðstefna um náttúruna og auðlindanýtingu

„Hvernig metum við hið ómetanlega? - auðlindir og nýting þeirra“ er yfirskrift ráðstefnu sem  Guðbrandsstofnun stendur fyrir í samstarfi við Ferðamálastofu, Landvernd og Orkustofnun um náttúruna og auðlindanýtingu. Ráðstefnan verður haldin á Hólum í Hjaltadal 16.-17. apríl.

Ráðstefnugjald er 4.000 kr. Innifalið í því er hádegisverður og kaffi, báða dagana. Skráning á ráðstefnuna er á heimasíðunni:  http://goo.gl/forms/NjHACjJYdI.

Dagskrá ráðstefnunnar er eftirfarandi:

  • 9:00 16. apríl, morgunverður
  • 10:00 Setning ráðstefnunnar sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup
  • 10:30 Sólveig Anna Bóasdóttir Hið ómetanlega: Er náttúran og auðlindirnar ómetanlegar? Hvers vegna ef svo er? Hvað merkir ómetanlegt? Hvernig metum við, virðum og lifum með hinu ómetanlega?
  • 11:30 Umræður
  • 12:00 Hádegisverður
  • 13:00 Auðlindir og ábyrgð: Hvað gerir auðlind? Hvenær hættir landssvæði að vera bara til – og fer að vera til fyrir tiltekna hagsmuni?  Hver er ábyrgð okkar í því ferli?
  • 15:00 Umræður og kaffi
  • 16:00 Auðlindanýting í hnattrænu samhengi: Nærumhverfi-þjóðarumhverfi-heimsumhverfi– hvaða skuldbindingar, réttindi og mögulegur ágreiningur tengjast misþröngri sýn á auðlindanýtingu?
  • 18:30 Pétur Gunnarsson Hvernig metum við hið ómetanlega?
  • 19:30 Kvöldverður úr matarkistu Skagafjarðar
  • 8:00 17. apríl, morgunverður
  • 9:00 Endurnýjanleiki og sjálfbærni: "Svört" eða "hvít" náttúruvernd; nýting og varðveisla auðlinda – mismunandi sjónarmið? Manngert umhverfi og náttúra – hvenær rennur þetta í eitt?
  • 11:00 Umræður
  • 11:45 Hádegisverður
  • 13:00 Kerfisvöld-þjóðarhagur: Kerfi hverra, skipuð af hverjum og fyrir hverja? Árekstrar við þjóðarhag – í nútíð og framtíð? Takmörkun möguleika eða útvíkkun?
  • 15:00 Samantekt og ráðstefnuslit, kaffi

Erindi flytja: Anna Dóra Sæþórsdóttir Háskóla Íslands, Arnheiður Eyþórsdóttir Háskólanum á Akureyri, Ágúst Valfells Háskóla Reykjavíkur, Árni Einarsson Rannsóknastöðinni við Mývatn, Ásdís Hlökk Theodórsdóttir Skipulagsstofnun, Daði Már Kristófersson Háskóla Íslands, Georgette Leah Burns Háskólanum á Hólum, Guðbjörg R. Jóhannesdóttir Háskóla Íslands, Hilmar Malmquist Náttúruminjasafni Íslands, Hjalti Hugason Háskóla Íslands, Kristinn Einarsson Orkustofnun, Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri, Sólveig Anna Bóasdóttir Háskóla Íslands

Fleiri fréttir