Ræsing Skagafjarðar og Ratsjáin
Kynningarfundur um Ræsingu Skagafjarðar og Ratsjána verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 29. janúar á Kaffi Krók kl. 17:00. Þátttakendum er boðið upp á súpu og brauð. Leitað er að góðum viðskiptahugmyndum sem auka flóru atvinnulífs í Skagafirði og fær besta viðskiptahugmyndin allt að 1.000.000 kr. í verðlaun.
Ræsing Skagafjarðar
Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samstarfi við Sveitarfélagið Skagafjörð og Kaupfélag Skagfirðinga leita að góðum viðskiptahugmyndum sem auka flóru atvinnulífs í sveitarfélaginu. Þátttakendur fá leiðsögn og fræðslu um áætlanagerð, vöruþróun og frumgerðasmíð. Verkefnið hefst í febrúar og skila þátttakendur viðskiptáætlun um verkefni sín í lok apríl. Besta viðskiptahugmyndin fær allt að 1.000.000 kr. í verðlaun.
Ratsjáin
Ratsjáin er nýsköpunar- og þróunarverkefni Íslenska ferðaklasans og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem býður stjórnendum í starfandi ferðaþjónustufyrirtækjum þátttöku í þróunarferli með það að markmiði að efla þekkingu og hæfni sína á sviði fyrirtækjareksturs. Verkefnið er unnið með stuðningi af Byggðaáætlun.
Umsóknarfrestur í bæði verkefnin er til og með 3. febrúar 2019.
Umsóknarform og frekari upplýsingar eru á www.nmi.is/ratsja, www.nmi.is/raesing eða hjá Selmu Dögg Sigurjónsdóttur selma@nmi.is og Sigurði Steingrímssyni sigurdurs@nmi.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.