Rafn Ingi nýr formaður Golfklúbbs Sauðárkróks
Rafn Ingi Rafnsson var kosinn formaður Golfklúbbs Sauðárkróks á aðalfundi klúbbsins sem fór fram þann 9. desember sl. en hann tekur við af Pétri Friðjónssyni sem gegnt hefur því embætti undanfarin ár.
Fundurinn fór fram í golfskálanum á Hlíðarenda en samkvæmt vef klúbbsins var ágæt mæting á fundinn, að venju voru umræður líflegar og skemmtilegar. Venjuleg aðalfundarstörf voru á fundinum og fluttu formenn nefnda ítarlegar skýrslur.
Breytingar urðu á stjórn klúbbsins, líkt og fyrr segir. Þú var Magnús Helgason kosinn gjaldkeri og tekur hann við af Ragnheiði Matthíasdóttur. Ný stjórn er því þannig skipuð að Rafn Ingi Rafnsson er formaður, Halldór Halldórsson varaformaður, Magnús Helgason gjaldkeri og Dagbjört Hermundsdóttir ritari. Einnig sitja formenn 3ja nefnda í stjórn. Sigríður Elín Þórðardóttir sem formaður mótanefndar, Rúnar Vífilsson formaður vallarnefndar og Hjörtur Geirmundsson formaður barna-og unglinganefndar.
Herdís Sæmundardóttir hlaut svokallaðan fyrirmyndarbikar GSS, sem er farandbikar veittur árlega þeim kylfingi sem þykir hafa verið til fyrirmyndar bæði innan vallar sem utan.
Ítarlega skýrslu fyrir starfsárið er að finna á síðu GSS.