Rafræn skráning hafin í Vetrar T.Í.M.
Rafræn skráning barna á aldrinum 6-18 ára í Vetrar T.Í.M. er nú hafin og lýkur þann 20. október. UMSS hefur óskað eftir því að öll börn yngri en 18 ára sem æfa og þjálfa hjá aðildarfélögum þess verði skráð í T.Í.M. kerfið, til þess að auðvelda foreldrum, þjálfurum, íþróttadeildum og félögum að halda utan um iðkendaskrána.
Fram kemur á heimsíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar að T.Í.M. kerfið býður foreldrum einnig betri yfirsýn yfir hvað er í boði hjá frístundarsviði sveitarfélagsins en kerfið heldur einnig utan um hverjir eiga rétt á svokölluðum Hvatapeningum.
T.Í.M.kerfið er hannað af STEFNU hugbúnaðarhúsi, í samstarfi íþróttahreyfingar og Frístundasviðs Sveitarfélagsins. Með þessu kerfi er m.a. hægt að fylgjast með hvernig árgangar skila sér inn í íþróttir, hvernig skipting er milli kynja, þegar iðkendum fækkar eða fjölgar, hvaða íþróttagreinar eru vinsælar hverju sinni og hverjar þurfa hvatningu.
Á heimasíðu Tindastóls er hægt að sjá það íþríttastarf sem er í boði og er hægt er að skrá börnin hér eða inni á Íbúagáttinn.