Rannsóknin í Hegranesi í fullum gangi
Eins og greint hefur verið frá í Feyki styrkir Bandaríski rannsóknarsjóðurinn (NSF) Byggðasafn Skagfirðinga ásamt bandaríku rannsóknarteymi til þriggja ára fornleifa- og jarðsjárrannsókna á skagfirskri kirkju- og byggðasögu. Teymið er nú komið til landsins og stendur rannsóknin sem hæst, eins og fylgjast má með á nýrri bloggsíðu verkefnisins.
Bandaríski hópurinn er undir stjórn John Steinberg og Douglas Bolender frá Massachussets háskóla í Boston (UMASS). Þeir eru Skagfirðingum að góðu kunnir þar sem að þeir hafa unnið að fornleifarannsóknum og jarðsjármælingum í Skagafirði frá 2001. Hópurinn hefur verið að þróa aðferðarfræði við að nota kjarnabora og jarðsjármælitæki til að meta aldur og stærð jarða, og með því greint breytingar á umfangi einstakra bæja og byggðamunstur stærri svæða.
Byggðasafnið hefur unnið að kirkjusögurannsóknum (Skagfirsku kirkjurannsókninni) frá 2008 en þó má segja að grunnur þess verkefnisins hafi verið í óvæntum fundi og allsherjar uppgreftri kirkjugarðs og kumlateigs í Keldudal árin 2002-3. Fornleifarnar í Keldudal sýndu fram á hversu mikil saga er fólgin í jörðu án þess að nokkur heimild finnist um þær eða ummerki á yfirborði.
Í framhaldinu ákvað safnið að kanna frekar hvar og hvernig best væri að finna og greina forna kirkjugarða, og var þá horft til þess að hægt væri að staðsetja þá og þar með forða þeim frá skemmdum vegna framkvæmda ýmiskonar. Þessi rannsókn vatt upp á sig og nú er búið að staðsetja 11 forna kirkjugarða. Að auki hefur 11. aldar kirkjugarður og kirkjuleif að Seylu á Langholti verið grafinn upp. Guðný Zoëga, deildarstjóri fornleifadeildar safnsins, er ábyrðaraðili rannsóknanna fyrir hönd þess í verkefninu.
Rannsóknin hófst á þessu ári og lýkur 2017. Í júní hófust starfsmenn Byggðasafnsins handa við heildar fornleifaskráningu Hegraness. Á dögunum kom svo hópur sérfræðinga og nema frá Bandaríkjunum og verður fram í miðjan ágúst. Með starfsmönnum Byggðasafnsins verða því um 20 manns við rannsóknir í Hegranesi í sumar. Auk áðurnefndrar bloggsíðu má fylgjast með á fésbókarsíðu verkefnisins, þar sem m.a. er að finna fjölda drónamynda frá rannsókninni.