Rappa fyrir Barnaspítala Hringsins

Skagfirsku drengirnir í hljómsveitinni Úlfur Úlfur ætla að troða upp á Gamla Gauknum í Reykjavík á morgun, laugardaginn 1. febrúar, samt Emmsjé Gauta, Larry Brd (Hlynur og Heimir Skyttumeðlimir) og Kött Grá Pjé. Allur ágóði tónleikanna mun renna óskiptur til Barnaspítala Hringsins og tónlistamenn, ásamt öllum öðrum sem leggja hönd á plóg, gefa vinnu sína.

„Á laugardaginn ætlum við í Úlfur Úlfur að hrópa til styrktar Barnaspítala Hringsins og það væri ógeðslega kúl ef þið mynduð mæta. Málefnið er göfugt og partýið verður gott,“ lofa drengirnir á Facebook-síðu hljómsveitarinnar.

„Láttu gott af þér leiða og skemmtu þér í leiðinni,“ segir jafnframt á Miði.is en þar kemur fram að rappveislan sé samvinnuverkefni Háskóla Íslands sem nemendur í viðskiptafræðideild skipuleggja.

Barnaspítali Hringsins hefur reynst veikum börnum og foreldrum þeirra nauðsynlegur griðarstaður í mörg ár, en eins og flestir vita eru tæki á Landspítalanum úr sér gengin og þarfnast mörg hver endurnýjunar.

Fleiri fréttir