Real Technics Burstarnir billegu!

Fröken Fabjúlöss hefur löngum verið annálaður burstafíkill og fyrir nokkrum mánuðum komst hún á snoðir um Real Technics burstana og hefur allar götur síðan þurft slefsmekk við að skoða þá á veraldarvefnum. Þessir burstar eru framleiddir af hinni dásamlegu dívu Samönthu Chapman sem í daglegu lífi er annar helmingurinn af Pixiwoo systradúóinu sem hefur dóminerað í förðunarheiminum á Youtube.

En ekki alls fyrir löngu fór Frökenin að spæja það í dýpstu og myrkustu hornum hins íslenska veraldarvefs að þessir burstar væru á leið inn á hinn íslenska markað, sem kom svo á daginn að væri skinheilagur sannleikurinn. Fröken Fabjúlöss hin nýjungagjarna og burstasnobbaða sá að ekki yrði mark á henni takandi fyrr en hún skartaði þessu nýjasta blómi í hnappagat hins íslenska förðunarheims og getur nú svo sannarlega með mikilli hamingju montað sig af því að allir burstarnir séu í hennar eigu!

Þar sem þetta eru ansi margir burstar ákvað Fab að taka þá 5 bursta sem eru í uppáhaldi hjá henni (í engri sérstakri röð) og útlista þá aðeins:

1. Powder Brush:
Fröken Fab er náttúrulega við það að tapa sér yfir því hvað þessi bursti er flöffí og mjúkur! Á þessu stigi málsins er það nánast aukaatriði, en þó RISASTÓR bónus að þetta er einn af betri púðurburstum sem hún hefur komið sínum vandlega lökkuðu klóm yfir!

2. Stippling Brush
Margir hafa velt því fyrir sér í hvað þessir burstar eru notaðir, svokallaðir "Stippling" burstar. Frökenin notar þá sem meikbursta og í kinnaliti og bronzera. Stippling burstinn frá RT er í þessari líka dásamlegu stærð! Ekki of stór til að vera eingöngu nothæfur á stærri svæði, og ekki of lítill til að nýtast bara á augnlok... Algjörlega fullkomin stærð og mjög góður bursti.. Og svo er hann líka bleikur, það skemmir ALDREI fyrir!

3. Expert Face Brush
Fröken Fabjúlöss flissaði svolítið þegar hún sá þennann bursta í fyrsta skipti þar sem lag burstans er eiginlega eins og smækkuð útgáfa af púðurbursta en mikið þéttari og stífari samt (án þess þó að missa mýkt). Frökenin varð þó fljótt að kyngja því flissi þar sem þessi bursti er einfaldlega stórkostlegur! Frábær í að fara yfir meikið eftir notkun á Stippling burstanum, til að setja highlighter og kinnalit.

4. Accent Brush
Þessi litla fegurðardrottning er geggjaður í augnskuggana! Bæði til að bera á augnlokið fyrir blöndun, sérstaklega í innri og ytri augnkrók þar sem hann er frekar lítill, og svo einnig ef verið er að ráðast í stærri framkvæmdir eins og "cut crease" förðun til að gera línuna og blanda smá út. Einnig alveg tilvalinn í að blanda út smokey förðun þar sem hann er frekar stífur.

5. Fine Liner Bursti
Fröken Fab var algjörlega á þeirri skoðun að þessi bursti væri of "feitur" til að geta verið eyelinerbursti. En það er með þennann eins og hina burstana frá RT að hann er svo þéttur og stífleikinn svo akkúrat eins og hann á að vera, að þetta vinnur allt saman og útkoman hin skynsamlegasta eyelinerlína!

Fröken Fabjúlöss viðurkennir það fúslega að þessir burstar valda ekki vonbrigðum! Þetta eru fyrstu förðunarburstarnir sem eru ekki úr ekta hárum sem hún fæst til fitla eitthvað við og finnst þeir bara alveg stórkostlegir! Ekki skemmir það heldur fyrir að þeir eru bara svona óttalega billegir, og fást í Lyfju, Hagkaup, Kjólar & Konfekt og örugglega víðar!

Real Technics burstarnir eru svo sannarlega efni í jólagjöf ef eitthvað er það!

Hérna fyrir neðan má sjá farðanir sem Fröken Fabjúlöss hefur skartað og notaði í þær Real Technics burstana.

 

 

Fleiri fréttir