Refir leggjast á fé

Þarna töpuðu tveir. MYND KÁRI GUNNARS.
Þarna töpuðu tveir. MYND KÁRI GUNNARS.

Tveir refir lögðust á afvelta lamb í Flatatungu á Kjálka í hríðarveðrinu á þriðjudag. Þegar fjárins var vitjað á túnum um morguninn, höfðu refirnir rifið lambið á hol og voru að gera sér gott af því.

Það sem kann að vekja hvað mestan óhug er að lambið var lifandi þegar að var komið en refirnir voru fljótir að láta sig hverfa. Annar þeirra snéri þó aftur síðar um daginn og var felldur við lambshræið. „Dýrið var ungur mórauður refur, líklega gotinn vorið 2022. Sem betur fer er það  frekar fátítt er að refir leggist á fé, en fennt fé og afvelta er líklegast til að verða rebba að bráð,“ segir Kári Gunnarsson sem var fenginn til að koma og liggja fyrir tófunni. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir