Reglum um niðurgreiðslu vegna daggæslu í heimahúsum breytt

Félags og tómstundanefnd Skagafjarðar hefur samþykkt breytingar á tíundu grein reglna um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum. Breyting var gerð á fyrstu málsgrein og þriðja og fjórða lið greinarinnar. Breytingin gildi í eitt ár frá 1. september 2011.

Eftir breytingar er reglan eftirfarandi;

10. Niðurgreitt er með eftirfarandi hætti fyrir börn fram að þeim tíma er barni býðst leikskólapláss:

• Fyrir börn einstæðra foreldra og foreldra þar sem báðir aðilar eru í fullu námi getur niðurgreiðsla hafist um mánaðarmót eftir 6 mánaða aldur barns.

• Fyrir öll önnur börn hefst niðurgreiðsla um mánaðarmót eftir 9 mánaða aldur barns.

• Hafni foreldrar leikskólaplássi fyrir barn sem orðið er 18 mánaða helmingast niðurgreiðslan og fellur að fullu niður eftir 24 mánaða aldur barnsins.

• Ef um sérstakar félagslegar eða heilsufarslegar aðstæður er að ræða er hægt að sækja um undanþágu frá ofangreindum aldursmörkum til félags- og tómstundanefndar

Fleiri fréttir