Rekstri Kanínu ehf. verður hætt

Birgit á kanínubúinu á Syðri-Kárastöðum.
Birgit á kanínubúinu á Syðri-Kárastöðum.

Frumkvöðullinn Birgit Kositzke, sem stofnaði félagið Kanínu ehf. og hefur rekið það á Syðri-Kárastöðum í Húnaþingi vestra hyggst á næstu vikum og mánuðum hætta rekstri félagsins. Í samtali við Bændablaðið segist Birgit rekstur af þessu tagi ekki ganga nema þolinmótt fé frá bönkum eða fjárfestum sé til staðar.

Í viðtalinu kemur fram að Birgit tekur fjármálafyrirtæki ekki hafa næga trú á þessari nýjung á sviði landbúnaðar og því sé ekki um annað að ræða en að hætta. Jafnframt segir Birgit að án styrkja sem fengust hefði verkefnið aldrei farið af stað. Í ársbyrjun fjallaði Feykir um fjáröflun sem Birgit stóð fyrir á Karolina fund í vor og náðust þau markmið sem sett voru með þeirri söfnun, en það dugði þó ekki til að bjarga rekstrinum.

„Ég er virkilega ánægð með þá styrki sem verkefnið fékk, ég fékk jákvæð viðbrögð og hefði ekki farið í þessa vegferð án þeirra. Fyrirtæki af þessu tagi, þar sem verið er að prófa nýjung á sviði landbúnaðar, lifir ekki af án þess að fyrir hendi sé öruggt fjármagn frá fjármálafyrirtækjum,# segir hún meðan annars í viðtalinu við Bændablaðið.

Fram kemur að viðtökur á markaði hafa verið með ágætum, einkum hafi gengið vel að kynna kjötið á matarhátíðum í Hörpunni en félagið tók þátt í nokkrum slíkum. Einnig hafa nokkur veitingahús á landinu boðið upp á kanínukjöt. Í viðtalinu segist Birgit vonast til að einhver taki við keflinu, ekki síst til að koma í veg fyrir að allt ræktunarstarfið sem hún hefur unnið fari ekki í súginn.

Tengdar fréttir:

Kanínubúinu að Syðri-Kárastöðum bjargað 

Leitar eftir aðstoð til að brúa bilið í kanínuræktinni

Opið hú hjá kanínu á Syðri-Kárastöðum

Sláturhús SKVH á Hvammstanga fær leyfi til að slátra kanínum

Kanínukjöt úr Húnaþingi vestra

Hefurðu smakkað kanínukjöt?

 

Fleiri fréttir