Rekstur Sjávarleðurs tryggður
Tilboði Gunnsteins Björnssonar, framkvæmdastjóra, og fjárfestingahóps sem hann er aðili að, í eigur þrotabús Sjávarleðurs á Sauðárkróki var samþykkt í upphafi vikunnar og starfsemi verksmiðjunnar því áfram tryggð. Frá því að fyrirtækið fór í þrot í júní sl. hefur tekist að halda starfsemi verksmiðjunnar gangandi með lágmarks mannskap en í september tók Gunnsteinn Björnsson, framkvæmdastjóri ásamt fleirum, Gestastofu Sútarans á leigu og hafa 10 starfsmenn framleitt sútuð fiskroð fyrir viðskiptavini og afhent þaðan.
Danski skóframleiðandinn Woden er um þessar mundir að setja í verslanir nýja skóframleiðslu sem gerð er úr þorsk- og laxaroði frá Sjávarleðri en á síðasta ári var unnin með þeim lína sem þeir kalla North Sea.
Allt kynningarefni þeirrar línu var tekið upp á Íslandi og segir Gunnsteinn aldrei áður verið lagt svo mikið í auglýsingar á neinni framleiðslu hjá þeim.
„Við bindum miklar vonir við að þetta verði mikilvægur kúnni fyrir okkur þar sem þetta er planlagt sem framtíðarefni hjá þeim,“ segir Gunnsteinn.