Rekstur sveitasjóðs í góðu jafnvægi

Frá Hvammstanga. Mynd: BÞ
Frá Hvammstanga. Mynd: BÞ

Rekstrarniðurstaða aðalsjóðs Húnaþings vestra var jákvæður um 60,3 milljónir á síðasta ári, en áætlanir gerðu ráð fyrir 200 þúsund króna neikvæðum rekstri. Niðurstaða samstæðu A og B hluta var jákvæð um 82,3 milljónir en hafði verið áætluð jákvæð um 4,3 milljónir. Í fundargerð sveitarstjórnar frá 12. maí sl. kemur fram að sveitarstjórn sé afar ánægð með niðurstöðuna.

Einnig segir í fundargerð að árið 2015 marki upphafið að mestu framkvæmdum í sveitarfélaginu um árabil en þrátt fyrir það sé reksturinn í góðu jafnvægi. Lágt skuldahlutfall sé grunnforsenda þess að á næstu árum verði hægt að halda áfram með þær fjárfreku framkvæmdir sem settar hafi verið á áætlun svo sem lagningu hitaveitu til sveita og stækkun íþróttahúss.

Í fundargerð segir ennfremur að lántökur hafi á undanförnum árum verið í lágmarki og áhersla lögð á að greiða niður skuldir. Þegar litið sé til niðurstöðu ársreikningsins hafi markmið sveitarstjórnar um áframhaldandi ábyrga fjármálastjórn náðst og sé það afar ánægjulegt. Það sé því ljóst að staða sveitarfélagsins er góð og í jafnvægi þrátt fyrir stórauknar framkvæmdir, hátt þjónustustig í sveitarfélaginu sem og aukinn kostnað sveitarfélaga almennt. Þessi góða staða sé ekki sjálfgefin og vill sveitarstjórn þakka stjórnendum og starfsfólki sveitarfélagsins fyrir aðhald og skynsemi í rekstri á árinu 2015. 

Fleiri fréttir