Reykjaskóli 80 ára
Í ár eru 80 ár frá því að skólahald hófst að Reykjum í Hrútafirði en það var 7. janúar árið 1931 sem fyrstu nemendur hófu nám við nýstofnaðan Héraðsskóla. Starfsemi hefur verið óslitinn í skólanum frá þessum tíma ef undan eru skilin árin 1940 - 1943 þegar breskt setulið hafði aðsetur á Reykjatanga og þar með í skólanum.
Skólabúðirnar í Reykjaskóla tóku til starfa haustið 1988 og hafa starfað óslitið síðan en þar er nemendum grunnskóla víðsvegar að af landinu gefinn kostur á að dvelja í skólabúðunum, vikutíma í senn við nám, leik og störf. Árlega koma á bilinu 2800-3000 börn í skólabúðirnar og miðast starfstíminn að mestu við skólaár grunnskóla landsins.
Nýlega var opnuð Facebooksíða fyrir Skólabúðirnar sem heitir einfaldlega "Skólabúðirnar í Reykjaskóla". Þar koma fréttir í hverri viku og hópmyndir af þeim skólum sem dvelja í skólabúðunum.
Haldið verður upp á þessi merku tímamót síðar á árinu og verður það auglýst þegar þar að kemur.