Reyndu að komst yfir heiðina á Yaris

Tveir vegfarendur reyndu að komast yfir Öxnadalsheiði á Yaris, þrátt fyrir að lokunarslá með blikkandi ljósum væri fyrir veginum. Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð kom fólkinu til aðstoðar.

Öxnadalsheiðin hefur verið lokuð í þrjá daga, mikill snjór er á heiðinni og stórir bílar hafa fest sig. Samkvæmt Facebook síðu björgunarsveitarinnnar komust ofurhugarnir aðeins 10 m upp fyrir lokunarslána og sátu þar fastir.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er ekki reiknað með að Öxnadalsheiði opnist fyrr en í fyrsta lagi um hádegi. Enn er ófært bæði á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi en að öðru leyti er þokkaleg færð á Norðurlandi vestra.

Fleiri fréttir