Riðið til messu á Reykjum

Sunnudaginn 21. júní ætla hestamenn í Stíganda að fara ríðandi til messu að Reykjum. Sr. Gísli Gunnarsson sér um messuna. Á eftir verður riðið aftur að Vindheimamelum þar sem grillað verður og gleðin við völd.

Komið verður saman á Vindheimamelum kl. 13:00 og  lagt af stað stundvíslega k. 13.30. Riðið verður að Steinsstöðum, farið yfir Fossvaðið og síðan reiðveginn. Hestarnir verða settir í hólf að Lækjarbakka og þaðan rölta hestamenn til Reykjakirkju.

„Eftir messuna drekkum við kaffi á Steinsstöðum , leggjum á , lokum hringnum og ríðum með Vötnunum til baka að Vindheimamelum. Þar verður grillað og sungið, sumarið látið seytla inn í sálina þegar dagurinn er eilífur og vakir,“ segir í tilkynningu frá ferðanefnd Stíganda. Þar eru þeir sem ætla að taka þátt í grillmatnum beðnir um að láta Agnar vita í síma 8954123 fyrir föstudagskvöld. Allir eru boðnir velkomnir.

Fleiri fréttir