Rikki leikmaður ársins
Friðrik Hreinsson var valinn leikmaður ársins á lokahófi körfuknattleiksdeildarinnar Tindastóls í liðinni viku. Friðrik var einnig valinn besti varnarmaðurinn og að lokum hlaut hann viðurkenningu fyrir að vera stigahæsti leikmaður vetrarins.
Pálmi Geir Jónsson var valinn efnilegastur, Hreinn Gunnar Birgisson þótti sýna mestar framfarir og þá fékk Helgi Rafn Viggósson viðurkenningu fyrir besta ástundun og að vera frákastahæstur.
Hópur fólks mætti á hófið og gerði sér glaðan dag og naut veitinga úr smiðju formannsins.
Myndir: Jóhann Sigmarsson Fleiri myndir má sjá hér