Rjúkandi ráð Sæluvikuleikritið 2014

Leikfélag Sauðárkróks ætlar að setja upp leikritið Rjúkandi ráð eftir Jónas Árnason, Jón Múla Árnason og Stefán Jónsson, fyrir Sæluvikuna 2014. Leikstjóri er Jóel Sæmundsson. „Við hjá Leikfélagi Sauðárkróks vitum ekki okkar Rjúkandi ráð en ætlum okkur að vita það 27. apríl næstkomandi,“ hljómar auglýsing leikfélagsins í nýjasta eintaki Sjónhornsins.   

Fyrsti fundur LS verður í Húsi Frítímans Sæmundargötu 7b, sunnud. 16. feb. kl. 20. „Við óskum því eftir fólki til að leika, sminka, hvísla, smíða, sauma, finna leikmuni, selja miða og margt fleira sem þarf til að koma leiksýningu á fjalirnar,“ segir í auglýsingunni. „Mikilvægt er að allir sem vilja vinna við sýninguna mæti á fyrsta fund til að sjá hversu stóran hóp af fólki við höfum.“

Þeir sem komast alls ekki á fundinn en vilja vera með geta haft samband við formann LS, Sigurlaugu Dóru í síma 862 5771 fyrir fundinn. 16 ára aldurstakmark.

 

Fleiri fréttir