Róleg Laufskálaréttarhelgi
Þó mikið hafi verið um að vera í Skagafirði um helgina og margir gestir heimsótt fjörðinn með öllu því tilstandi sem fylgir Laufskálaréttargleði, var helgin nokkuð góð að sögn Lögreglunnar á Sauðárkróki, og stóð undir væntingum miðað við þann fjölda gesta sem gerðu sér glaðan dag. Þakkar hún góðri gæslu og undirbúningi.
Eitthvað var um minniháttar umferðaróhöpp, sem kalla má nudd og sem kannski er ekki óeðlilegt þar sem margir bílar eru samankomnir á ómerktum stæðum eins og í kringum Laufskálaréttina. Einn var tekinn grunaður um ölvun við akstur.
Hið árlega Laufskálaréttarball fór fram á laugardagskvöldið í Reiðhöllinni á Sauðárkróki og var það fjölmennt eins og búast mátti við. Um 2000 manns skemmtu sér við tóna hinnar mögnuðu hljómsveitar Vonar sem fékk landslið söngvara til að stíga á stokk með sér.
Fór ballið vel fram í alla staði og engin mál komu á borð lögreglunnar enda mikill viðbúnaður og góð gæsla. Eyþór Jónasson hallarstjóri segir að 5 óeinkennis lögreglumenn hafi verið inni á ballinu, 30 dyraverðir, 2 lögreglumenn með fíkniefnaleitarhunda auk hins venjulega fjölda lögreglumanna á staðnum.