Röstin landaði 23,5 tonn af rækju í gær

Röst SK 17, rækjuveiðiskip Dögunar kom að landi í gær með 23,5 tonn af rækju eftir 5 daga veiði. Veiðar hafa gengið þokkalega að sögn Þrastar Friðfinnssonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins en botninn datt úr rækjuveiði í nóvember og var þá veiði sjálfhætt.

Veiði hófst á ný í mars og hefur farið heldur batnandi, sem og tíðin, segir Þröstur. Röst hafði legið við bryggju síðan 2007 eða í 5 ár þangað til farið var af stað að nýju í fyrra sumar.

Tilkynnt hefur verið um stöðvun rækjuveiða frá 1. júlí en Þröstur vonast til að það verði endurskoðað, enda hefur verið bærileg rækjuveiði og virðist vera töluvert af rækju og allvíða á slóðinni.  -Enginn veit þó enn hvaða stefnu nýr ráðherra tekur varðandi rækjuna, segir Þröstur.

Fleiri fréttir