Rótarýklúbbburinn færði Heilbrigðisstofnuninni húsgögn að gjöf
Þann 23. janúar sl. afhentu félagar í Rótarýklúbbi Sauðárkróks, Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki húsgögn að gjöf en þau verða notuð á hjúkrunardeild HS.
Þann 30. nóvember 2013 bauð Rótarýklúbbur Sauðárkróks Skagfirðingum til ókeypis jólahlaðborðs. Um 600 manns mættu og nutu matar og skemmtunar í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Þetta var hægt með öflugum stuðningi góðra fyrirtækja sem lögðu verkefninu lið. Alls söfnuðust um 800.000 krónur sem voru notaðar til að kaupa þessi húsgögn.
Eftirtalin fyrirtæki styrktu verkefnið og færir Rótarýklúbbur Sauðárkróks þeim bestu þakkir fyrir:
Arion banki
Doddi málari
Dögun
Fisk Seafood
Grettistak
Hlíðarkaup
Kaupfélag Skagfirðinga
KPMG
K-Tak
Landsbankinn
Lyfja
Nýprent
OK gámaþjónusta
Ólafshús
Rafsjá
Sauðárkróksbakarí
Skagfirðingabúð
Sparisjóðurinn
Steinull
Stoð ehf
Sveitarfélagið Skagafjörður
Tengill
Vörumiðlun
Ölgerðin Egill Skallagrímsson