Rúmlega 170 þúsund söfnuðust styrktar Magnúsi
Síðastliðinn laugardag var haldinn dasleikur á Mælifelli til styrktar Magnúsi Jóhannessyni og fjölskyldu. Rúmlega 170 þúsund krónur og voru það Hljómsveit Geirmundar, Kaupfélag Skagfirðinga og Mælifell sem stóðu að dansleiknum. Eins og von var á héldu Geirmundur og félagar uppi góðu stuði alla nóttina.
Á morgun laugardag verður Bjarni Gunnarsson kokkur á Grand hótel, gestakokkur á Ólafshúsi í tilefni af því verður boðið upp á 3ja rétta draumamáltíð fyrir aðeins 3.900.- Val er milli tveggja forrétta, aðalrétta og eftirrétta.
Hægelduð bleikja á asísku perumauki með piklaðri seljurót eða Tómatlöguð sjávarréttasúpa með hörpuskel og rækjum.
Grillað lambafille með kartöfluköku, sætkartöflumauki og rósmaringljáa eða Saltfiskhnakki eldaður í rósmarín og hvítlauk með dill-kartöflumús og julianne-grænmeti.
Lime-tart með berja-compot eða Frönsk súkkulaðikaka með pekanhneturjóma og jarðaberjum.
Þarna er komið upplagt tækifæri til að eiga notalega kvöldstund eða hefja gott kvöld sem gæti jafnvel endað á dansleik á Mælifelli.