Rúnar Birgir í stjórn – tveir kanar leyfðir

Körfuknattleiksþing var haldið í Skagafirði um helgina, en fyrir þinginu lágu nokkrar veigamiklar tillögur sem hlutu misjafnt gengi. Fyrir þinginu lá fyrir tillaga um svokallaða 3+2 reglu, eða að alltaf yrðu að vera þrír íslenskir ríkisborgarar inni á vellinum í einu. Var þessi tillaga sett upp til að stemma stigu við útlendingaflóði. Tillagan féll á jöfnum atkvæðum, en gripið var til þess að greiða atkvæði með leynilegri kosningu, sem er ekki algengt á þingum KKÍ.

Tillaga um að leyfa tvo erlenda leikmenn var síðan samþykkt, en það þýðir að lið geta fengið að hafa tvo kana innan sinna raða í staðinn fyrir einn eins og verið hefur.

Tillaga um fjölgun á dómurum úr tveimur í þrjá var felld, en í flestum efstu deildum í Evrópu er svokallað þriggja dómara kerfi og Ísland því að dragast aftur úr hvað dómgæslu varðar að mati margra. Útreikningar sem lagðir voru fram á þinginu sýndu að um kostnaðarauka yrði að ræða fyrir lið upp á 160-170 þúsund krónur á ári og við það vildi þorri þingheims ekki una.

Þá var tillaga um þrefalda umferð í Íslandsmótinu felld, en þess í stað samþykkt að fyrirtækjabikarinn – sem í dag heitir Lengjubikarinn, verði leikinn samhliða deildarkeppninni fyrir áramót og þéttist þá leikjaprógramm liðanna, en mikið hefur verið kvartað um fáa leiki.

Rúnar Birgir Gíslason var kjörinn nýr inn í stjórn KKÍ, en með honum voru kosnir tveir aðrir með sterka tengingu við Skagafjörð, nefnilega Páll Kolbeinsson og Lárus Ingi Friðfinnsson. Hannes Jónsson var endurkjörinn formaður og auk hans og þeirra þriggja „skagfirsku“ stjórnarmanna sem áður er sagt frá, voru þau Guðbjörg Norðfjörð, Erlingur Hannesson og Eyjólfur Þór Guðlaugsson endurkjörin.

Fleiri fréttir