Rúnar Sveinsson fljótastur í Árnahlaupinu

Árnahlaupið fór fram á Sauðárkróki og í næstu fjallshlíðum í gær en hlaupið var tileinkað Árna Stefánssyni íþróttakennara á Sauðárkróki. Hefur hann verið óþreytandi við að halda Skokkhópnum svokallaða saman og færa hann úr stað. Alls tóku sjötíu manns þátt í stóra hlaupinu þar sem keppt var um tíma en óráðið er hversu margir tóku þátt í styttri vegalengdum. Það var Rúnar Sveinsson brottfluttur Króksari sem reyndist úthaldsbestur og kom fyrstur í mark á tímanum 01:27:40.

Annar til að klára hlaupið var Lárus Jónas á 01:29:05 og þriðji var Jón Svavarsson á 01:30:01    

 

Árni Stefáns að hlaupi loknu. Mynd: Kristján B. Halldórsson.

Karlar 39 ára og yngri
1          Rúnar Sveinsson         01:27:40

Karlar 40-49 ára
1          Lárus Jónas     01:29:05

Karlar 50 ára og eldri
1          Jón Svavarsson           01:30:01

Konur 39 ára og yngri
1          Hrafnhildur Guðnadóttir       01:32:13

Konur 40-49 ára
1          María Haraldsdóttir    01:35:35

Konur 50 ára og eldri
1          Auður Aðalsteinsdóttir          01:33:05

Nánari úrslit er hægt að nálgast á Hlaup.is

Fleiri fréttir