Sæl og glöð í sauðburðarheimsókn

Á föstudaginn heimsóttu fyrstu bekkingar Árskóla á Sauðárkróki bæinn Keldudal í Hegranesi í Skagafirði í sauðburði. Um var að ræða 23 börn sem skoðuðu búskapinn, ásamt kennurum sínum. Að sögn Guðrúnar Lárusdóttur bónda þar hefur sú hefð verið í 35 ár að fyrsti bekkur heimsæki bæinn.
Það er mikið ævintýri að heimsækja Keldudal, og þar gátu börnin séð ýmis íslensk húsdýr. Heimsóttu þau meðal annars kýr, naut, kálfa, ær og lömb, geitur og kiðlinga, kött, kanínur og íslenska fjárhunda. Eins og nærri má geta voru börnin sæl og ánægð með heimsóknina. /KSE