Sæluostar fyrir páska

Sæluostar úr sveitinni verða til sölu fyrir páska en þeir eru framleiddir af vinkonunum Stellu Jórunni A. Levy og Sæunni Vigdísi Sigvaldadóttur í Vestur-Húnavatnssýslu.

–Þetta er enn að þróast hjá okku og erum við ekki orðnar stórar í ostaheimum ennþá, enda byrjuðum við í fyrravor í rólegheitum og af forvitni ef svo má að orði komast, segir Stella.

Hér er á ferðinni svokallaður ferskostur og búinn til í 5 bragðtegundum: hreinn ostur; piparostur; sólþurrkaðir tómatar og óreganó; graslauksostur; hvítlaukur og basil. Þeir sem hafa áhuga á að fá sér heimagerðan eðalost geta haft samband í síma 823 52 57 eða á netfangið stellajorunn@gmail.com .

Hægt er að forvitnast meira um þær Stellu og Sæunni á Norðanáttinni HÉR

Fleiri fréttir