Sætaferðir á nágrannaslag af bestu gerð

Nágrannaliðin Tindastóll og Þór Ak mætast í meistaraflokki karla í körfu á Akureyri nk. föstudagskvöld en boðið verður upp á sætaferðir á leikinn. „Það er algjör skylda að fólk nýti sér þetta og sýni strákunum stuðning með því að mæta og styðja við bakið á þeim,“ segir í frétt á heimasíðu Tindastóls.

Um er að ræða 46 manna rútu og er markmiðið að nýta hvert sæti. Verð fyrir sæti verður haldið í algjöru lámarki eða 1500 krónur. Áhugasamir sendi tölvupóst á karfa@tindastoll.is, en tekið verður við skráningum fram að kvöldi miðvikudags.

 

Fleiri fréttir