Sæunnarkveðja Gísla Þórs komin út
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
09.12.2010
kl. 08.54
Út er komin 5. ljóðabók Gísla Þórs Ólafssonar, Sæunnarkveðja – sjóljóð. Í bókinni segir af ævintýralegu sjóferðalagi einstaklings. Kápumynd gerði Hilmir Jóhannesson. Bókin er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.
Höfundurinn sem aldrei hefur farið í sjóferð segist einungis vera ljóðmælandi þessarar bókar sem fjallar um sömu sjóferðina sem á köflum er ansi skrautleg og húmorinn er ekki langt undan.
- stundum á síðkvöldum
- ímynda ég mér að hún sé að kafa
- og komi kafandi til mín
- komi uppúr eins og hafmeyja
- kafandi hingað á reginhaf
- það er samt varla að hún sé í formi til þess
- nema hún hafi verið í átaki
Höfundurinn sér sjálfur um sölu bókarinnar og er áhugasömum bent á að hægt er að senda fyrirspurn á netfangið gislith@simnet.is