Sævar í 74. sæti í 15 km skíðagöngu
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
15.02.2014
kl. 10.52
Sævar Birgisson endaði í 74. sæti af 92 keppendum í 15km skíðagöngu með hefðbundinni aðferð á Vetrarólympíuleikunum í Sochi í gær. Sævar ræsti 85. og fór kílómetra fimmtán á 45:44,2 mínútum og varð rúmum sjö mínútum á eftir Ólympíumeistaranum Dario Cologna frá Sviss.
Á Vísi.is segir að Sævar hafi tekið á mikinn sprett við endamarkið og náði að vera fyrir ofan Ástralann Callum Watson. Sævar skildi tólf til viðbótar fyrir aftan sig fyrir utan þá fimm sem kláruðu ekki gönguna í gær.
Þetta var önnur ganga Sævars á leikunum en hann varð í 72. sæti sprettgöngu fyrr í vikunni.
Á Vísi.is má sjá endasprett Sævars Birgissonar í gær.