Sævar Íslandsmeistari í karlaflokki

Í gær fór fram Íslandsmót á gönguskíðum í Ólafsfirði í lengri vegalengdum hjá 16 ára og eldri. Sauðkrækingurinn Sævar Birgisson, sem keppir fyrir Skíðafélag Ólafsfjarðar, varð Íslandsmeistari í karlaflokki, Hólmfríður Vala Svavarsdóttir SFí sigraði í kvennaflokki, Sindri Freyr Kristinsson SKA sigraði í flokki pilta 18-20 ára, Elena Dís Víðisdóttir SFÍ sigraði í stúlknaflokki 16-17 ára og Albert Jónsson SFÍ sigraði í flokki drengja 16-17 ára. 

Einnig fór fram Bikarmót SKÍ í flokkum 12-15 ára. Gengið var með hefðbundinni aðferð og aðstæður voru fínar í Ólafsfirði. Í dag var svo keppt í göngu með með frjálsri aðferð. Öll úrslit má sjá hér.

 

http://skiol.fjallabyggd.is/static/files/2014skidaganga/Bikarm_2014_laugard.pdf

Fleiri fréttir