Sakleysisleg bréf með póstinum

Raforkuverð til húshitunar er mikið hagsmunamál fyrir íbúa landsbyggðarinnar og á dögunum reiknaði Orkustofnun út kostnað við raforkunotkun og húshitun á sambærilegri fasteign, að beiðni Byggðastofnunar, eins og Feykir hefur fjallað um.

Um svipað leyti og niðurstöðurnar voru birtar hafði Garðar Jónsson, rafvirki og ábúandi á Melstað í Óslandshlíð í Skagafirði, samband við blaðamann Feykis og sagði farir sínar ekki sléttar varðandi raforkukostnað.

„Núna á dögunum komu tvö sakleysisleg bréf með póstinum, annað frá Rarik og hitt frá Orkusölunni. Innihald þessara bréfa var það að mér ber að borga fyrir aukna rafmagnsnotkun eða hækkun á rafmagni, áttatíu og átta þúsund í notkun og áttatíu og þrjú fyrir flutninginn,“ segir Garðar m.a. í heilsíðu viðtali sem birtist í Feyki í dag.

Fleiri fréttir