Samanburðarrannsókn á heilsu og líðan Skagfirðinga og Sunnlendinga
Rannsókn á heilsufarslegum afleiðingum eldgossins í Eyjafjallajökli stendur yfir og er samanburðarrannsókn á heilsu og líðan íbúa í sveitarfélaginu Skagafirði hluti af því verkefni. Sendir hafa verið út spurningalistar þar sem fólk er beðið um að svara spurningum varðandi efnið og er mikilvægt að sem flestir þeirra sem leitað var til taki þátt til þess að samanburðurinn verði marktækur.
Ástæða þess að Skagafjörður varð fyrir valinu er sú að svæðið er landbúnaðarhérað þar sem beinna áhrifa eldgossins gætti ekki. Farið var í samskonar gagnasöfnun á Suðurlandi og ætti samanburður milli þeirra sem urðu fyrir beinum áhrifum eldgossins og hinna sem búa fjarri gosstöðvunum því að verða áhugaverður.
Dr. Guðrún Pétursdóttir framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands er ábyrgðarmaður rannsóknarinnar og telur hún þetta vera einstakt tækifæri til að kanna áhrif eldgosa á heilsu manna meðal annars um andlega líðan þess að upplifa eldgos í návígi við heimili sitt og að vera útsettur fyrir ösku af því tagi sem Eyjafjallajökull sendi frá sér.
Þátttaka Skagfirðinga er mjög mikilvæg til að hægt verði að draga ályktanir um áhrif eldgossins. Náist góð svörun frá Skagfirðingum verður einnig hægt að fá góða yfirsýn yfir heilsufar og líðan fólks, 18-80 ára, sem býr í sveitarfélaginu Skagafirði.