Samfelldur hagnaður í 23 ár

Athafnasvæði Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki. Ljósm./BÞ
Athafnasvæði Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki. Ljósm./BÞ

Steinull hf. á Sauðárkróki, sem er eina Steinullarverksmiðja landsins, fagnaði fyrr í þessum mánuði 30 ára afmæli sínu. Framleiðsla hófst í verksmiðjunni 15. september 1985, eftir nokkurn undirbúning. Sitt sýndist hverjum um framtíðarhorfur þessa iðnaðarfyrirtækis sem sveitarfélagið og Ríkið komu á koppinn á sínum tíma og eftir fjögur erfið ár í upphafi var farið í endurskipulagningu á eignarhaldi. Fyrirtækið hefur nú skilað hagnaði í 23 ár samfleytt og staðið af sér fleiri en eina kreppu í byggingariðnaði.

Einar Einarsson framkvæmdastjóri Steinullar hf. segir afköst verksmiðjunnar ekki hafa aukist mikið frá upphafi. Þegar starfsemin hófst voru starfsmenn um 30 og framleitt með tveggja vakta kerfi en nú eru starfsmenn um 40 og framleitt á þrískiptum vöktum. Framleiðslan var þó mjög lítil fyrstu tvö árin, meðan menn voru að vinna markaði. Um 1990 var framleiðslan komin í 6000 tonn, en 1992 og 1993 kom dálítil kreppa í efnahagslífinu. Þá dró heldur úr framleiðslunni en eftir það fór hún hægt vaxandi til 2002.

„Svo kemur smá aðvörun 2003 en síðan var þetta brjáluð uppsveifla þar til hrunið varð 2008 og salan á innanlandsmarkaði minnkaði úr 180 þúsund rúmmetrum í 60 þúsund. Síðan hefur salan farið hægt vaxandi en það er ennþá langt í land með að ná þeirri framleiðslu sem var fyrir hrun,“ segir Einar. Hann segir þetta ár þó líta afar vel út það sem af er og reiknar með að það verði mun stærra en það síðasta og framleiðslan fari í um 7500 tonn.

Blaðamaður Feykis hitti Einar sem hefur verið framkvæmdastjóri verksmiðjunnar frá 1988, og fékk innsýn í starfsemina fyrr og nú. Viðtal við Einar er að finna í Feyki vikunnar.

Fleiri fréttir