Samið við K-Tak ehf. um framkvæmdir við nýjan vatnstank
feykir.is
Skagafjörður
29.03.2016
kl. 14.44
Fimmtudaginn 17. mars sl. voru opnuð tilboð í nýjan vatnstank og viðbyggingu við lokahús á Gránumóum á Sauðárkróki. Samkvæmt fundargerð Veitunefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar frá 23. mars sl. bárust tvö tilboð í verkið.
Tilboðin voru svohljóðandi;
- Friðrik Jónsson ehf. 53.027.199.-
- K-Tak ehf. 47.409.345.-
- Kostnaðaráætlun, Stoð ehf. 50.928.950.-
„Veitunefnd samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, K-Tak ehf.,“ segir loks í fundargerð.