Samkomulag um sameiningu stéttarfélaga
Stjórnir Stéttarfélagsins Kjalar og Starfsmannafélags Skagafjarðar hafa undirritaðsamkomulag um sameiningu félaganna undir nafni þess fyrrnefnda. Samkomulagið verður kynnt félagsmönnum í Starfsmannafélagi Skagafjarðar á næstu dögum og afgreitt á aðalfundi félagsins í febrúar.
Sameiningin hefur þegar verið kynnt á trúnaðarmannafundi hjá Kili og á aðalfundi félagsins í mars verður hún endanlega staðfest með kosningu nýrrar stjórnar. Formenn beggja félaganna, þau Árni Egilsson hjá Starfsmannafélagi Skagafjarðar og Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar, segja þetta jákvætt skref.
Stækkun á 10 ára afmælinu
Kjölur er stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu sem varð til við sameiningu Félags opinberra starfsmanna í Húnavatnssýslum, Starfsmannafélags Akureyrarbæjar, Starfsmannafélags Borgarbyggðar, Starfsmannafélags Dalvíkurbyggðar og Starfsmannafélags Siglufjarðarkaupstaðar árið 2004. Að aflokinni sameiningu verður Kjölur með rúmlega 1000 félagsmenn og eitt af fimm stærstu stéttarfélögunum innan BSRB. Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður, segir enn frekari eflingu félagsins með sameiningu við Starfsmannafélag Skagafjarðar jákvæða.
„Það má segja að hér séum við að stíga næsta skref í því verkefni sem við hófum fyrir 10 árum. Til verður enn stærri heild hér á Norðurlandi og slagkraftur félagsins fyrir hönd félagsmanna eykst,“ segir Arna Jakobína en allir sjóðir félaganna sameinast, þ.e. sjúkrasjóðir, starfsmennta- og orlofssjóðir.
Fyrir átti Kjölur orlofshús á Eiðum, í Munaðarnesi, í Biskupstungum, Vaðlaborgum og í Reykjavík en með sameiningunni bætast við hús á Eiðum, í Varmahlíð í Skagafirði og í Munaðarnesi. Verði samkomulagið staðfest af aðalfundi SFS mun bókhald félagsins færast til skrifstofu Kjalar á Akureyri, auk þess sem fráfarandi formaður SFS fær strax sæti sem áheyrnarfulltrúi í stjórn Kjalar fram að aðalfundi í mars. Þá verður leitað eftir samningi við Stéttarfélagið Ölduna um þjónustu á skrifstofu þess á Sauðárkróki við félagsmenn í Skagafjarðardeild Kjalar.
Miklir kostir við sameiningu
Starfsmannafélag Skagafjarðar var stofnað árið 1971 og innan vébanda þess eru ríkisstarfsmenn í Skagafirði, sem og starfsmenn hjá Sveitarfélaginu Skagafirði, alls um 160 félagsmenn. Árni Egilsson, formaður stjórnar SFS, telur félagsmenn skapa sér sterkari stöðu í stærra félagi.
„Ávinningurinn er fjölþættur og snýr að launamálum, orlofsmálum, starfsmenntamálum og ýmsu öðru. Stéttarfélög þurfa að vera stærri í þeim heimi sem við búum í dag og sterkari gagnvart viðsemjendum. Lítil stéttarfélög eru smám saman að verða börn síns tíma. Að okkar mati eru því miklir kostir við þessa sameiningu,“ segir Árni.
Fréttatilkynning