Samningur um Unglingalandsmót UMFÍ 2014 á Sauðárkróki undirritaður

Samningur um 17. Unglingalandsmót UMFÍ var undirritaður í Húsi frítímans í gær en mótið verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina, sem verður dagana 1. - 4. ágúst. Þetta er í þriðja sinn sem mótið er haldið í bænum en mótin fóru þar áður fram árin 2004 og 2009.

Að sögn Helgu G. Guðjónsdóttur formanns UMFÍ sóttu níu staðir um að halda mótið og varð Sauðárkrókur fyrir valinu m.a. vegna frábærrar íþróttaaðstöðu og þess ómælda kost að hafa allt á sama stað, þ.e. tjaldstæði, keppnis- og afþreyingasvæði og o.s.frv. Einnig hafði hún orð á því að fyrri mót hafi heppnast einstaklega vel og bar hún sömu væntingar til Unglingalandsmóts sumarsins 2014.

Helga G. Guðjónsdóttir, Jón Daníel Jónsson, Ásta B. Pálmadóttir og Gunnar Þór Gestsson undirrita samningana.

Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð. Gert er ráð fyrir um 2000 keppendum á mótið en það er ætlað ungmennum á aldrinum 11-18 ára. Mótsgjaldið er 6000 kr. á keppanda og er það eina gjaldið sem rukkað er fyrir utan lítið gjald fyrir rafmagnsnotkun á tjaldstæðinu. Fjölmargir sjálfboðaliðar koma að mótinu en mótshaldið er í höndum UMSS, með stuðningi Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem og UMFÍ. Formaður Unglingalandsmótsnefndar er Halldór Halldórsson en hér má sjá lista með nöfnum þeirra sem eru í nefndinni.

Fleiri fréttir