Samskip kynna nýtt siglingakerfi til og frá Íslandi og Færeyjum

Samskip gera stórfelldar breytingar á siglingaleiðum sínum nú í október. Í stað tveggja leiða verður nú siglt á þremur þar sem tvær, Norðurleið og Suðurleið, fara til Evrópu og ein, Strandleið, þjónar millilandaflutningum frá höfnum á Norður- og Austurlandi um Færeyjar til Evrópu. Við þessar breytingar bætist eitt skip í flotann.

Afhending í byrjun viku
Með nýju og breyttu siglingakerfi koma Samskip til móts við þarfir viðskiptavina sinna sem kalla á styttri flutningstíma, aukinn áreiðanleika og aukna tíðni ferða. Fyrir innflutning er þjónustan sniðin að því að afhenda vörur á Íslandi snemma í vikunni. Fyrir útflutning er boðið upp á afhendingar í upphafi viku á lykilmarkaði í Evrópu. Þá er þjónusta við landsbyggðina efld til muna með vikulegum viðkomum á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi.

Norðurleið er sniðin að þörfum þeirra sem flytja út vörur til meginlandsins og þeirra sem flytja inn vörur frá Skandinavíu, jafnframt því að þjóna Færeyjum. Suðurleið er sniðin að þörfum viðskiptavina sem flytja vörur til og frá Bretlandi og að innflutningi frá meginlandinu. Suðurleið tengir jafnframt Vestfirði beint inn á Bretland og meginlandið með vikulegum viðkomum á Bíldudal, sem er ný höfn í siglingakerfi Samskipa. Strandleið tengir svo viðkomuhafnir á Norður- og Austurlandi inn á Norðurleiðina í Færeyjum í viku hverri.

Geta betur tekist á við frávik
„Nýja siglingaáætlunin færir viðskiptavinum okkar margvíslegan ávinning,“ segir Pálmar Óli Magnússon forstjóri Samskipa á Íslandi. „Útflutningur á ferskum afurðum frá Íslandi á mikilvæga markaði í Evrópu í upphafi viku er viðskiptavinum okkar mikils virði. Nú getum við boðið afhendingu á mánudagsmorgni hvort sem er í gegnum Hull í Bretlandi eða Rotterdam í Hollandi inn á mikilvæga markaði í Evrópu.“

Með breytingunum segir Pálmar Samskip jafnframt svara kalli viðskiptavina sinna og geti nú afhent innflutningsvöru degi fyrr en áður í Reykjavík, sem sé fagnaðarefni fyrir marga. „Þjónusta okkar við byggðir landsins er að sama skapi efld verulega, enda bjóðum við nú vikulega komu skips á Bíldudal, Sauðárkrók, Akureyri og Reyðarfjörð. Nýja kerfið er betur í stakk búið til að takast á við frávik sem kunna að verða vegna veðurs, líkt og við þekkjum allt of vel hér á Norðurslóðum. Við erum sannfærð um að þessu nýja siglingakerfi verður vel tekið af öllum þeim sem þurfa á flutningsþjónustu að halda enda er það afrakstur samtals sem við höfum átt um nokkurt skeið við viðskiptavini okkar.“

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir