Samskiptadagur í Húnaþingi vestra
Miðvikudaginn 28. mars nk. verður haldinn Samskiptadagur í Húnaþingi vestra en um er að ræða almennan íbúafund um jákvæð samskipti. Þar mun Séra Magnús Magnússon mun flytja erindi um samskipti og siðferði og Hafþór Birgisson frá SAFT flytur erindi um ábyrga og jákvæða notkun netsins og annarra nýmiðla.
„Internetið er frábær upplýsingaveita og tæki til samskipta en þar felast einnig ýmsar hættur sem mikilvægt er fyrir foreldra að þekkja og gera sér grein fyrir. Til að foreldrar geti talað við börnin sín og leiðbeint þeim um öryggi og góða hegðun þurfa þeir að þekka það umhverfi sem þeir eru í dags daglega. Leiðbeiningar um “umferðarreglur” á netinu eru því orðinn einskonar hluti af uppeldishlutverkinu,“ segir í fréttatilkynningu frá heimasíðu stýrihóp um forvarnir í Húnaþingi vestra.
Á samskiptadeginum verður fjallað um netið nýmiðla og mikilvægi þeirra í lífi barna og unglinga. Til umræðu verður m.a.:
- helstu notkunarleiðir og venjur barna og unglinga,
- hvað nauðsynlegt er að hafa í huga til að netnotkun verði örugg og ánægjuleg,
- hvernig foreldrar og kennarar geta rætt um jákvæða og örugga netnotkun við börn og unglinga, og
- á nokkrum af þeim "verkfæra" sem ungt fólk notar.
Samskiptadagurinn hefst kl. 17 í Félagsheimilinu á Hvammstanga og eru nemendur í 8., 9. og 10. bekk sérstaklega hvattir til að mæta með foreldrum sínum og að loknum erindum eru allir fundarmenn eru hvattir til að taka þátt í almennum umræðum.