Samstarfssamningur Hvatar og Blönduóssbæjar framlengdur

Húni segir frá því að í gær undirrituðu þau, Þórhalla Guðbjartsdóttir formaður Umf. Hvatar og Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri Blönduósbæjar undir endurnýjaðan samstarfssamning.

Samningnum er ætlað að efla samstarf bæjaryfirvalda á Blönduósi og Ungmennafélagsins Hvatar og tryggja öflugt íþrótta- og tómstundastarf fyrir börn og unglinga í Blönduósbæ samkvæmt stefnu bæjaryfirvalda þar um. Samningurinn er til þriggja ára.

Góð íþróttaaðstaða er á Blönduósi en Hvöt annast m.a. rekstur knattspyrnudeildar og íþróttaskóla jafnframt því að stuðla að sem mestri þátttöku ungra sem aldinna í íþróttum á Blönduósi með kynningu á starfinu og bíður sem flestum til þátttöku í fjölbreyttu starfi

Fleiri fréttir