Samþykkir ráðningu til grenjavinnslu

Landbúnaðarráð Húnaþings vestra hefur samþykkt ráðningu Björns Viðars Unnsteinssonar til að annast grenjavinnslu í fyrrum Þverárhreppi, ásamt Konráði P. Jónssyni.

 

Ráðningin var samþykkt á 106. fundi landbúnaðarráðs sem haldinn var 1. desember sl. Byggðaráð vísaði bréfi frá Konráðs P. Jónssonar til umsagnar hjá landbúnaðarráði þar sem Konráð óskaði eftir því að Björn Viðar yrði ráðinn, til að sinna grenjavinnslu í fyrrum Þverárhreppi, í stað Baldurs Heimissonar.

Fleiri fréttir