Sannkallaður jólaglaðningur

Þrír sleðamenn fóru af stað í Deildardalsafrétt í Skagafirði sl. miðvikudag í þeim tilgangi að athuga hvort eitthvert fé væri að finna þar.  Í leitirnar kom veturgömul ær með lambi frá bænum Grindum og var hún býsna ánægð er hún komst heim og í hús að sögn eiganda hennar, enda ekki ónýtt að mæta beint í fengitímann. 

 

-Ærin og lambið voru nokkuð spræk þrátt fyrir að hafa verið úti allan þennan tíma en bæði búin að leggja nokkuð mikið af, sagði Rúnar Páll Hreinsson bóndi á Grindum.

-Gott sleðafæri er víða svo ef menn vita af eða vantar fé af fjalli er ekki úr vegi að nota gott veður og góða færð til að fara af stað og kanna málin. Þetta er sannkallaður jólaglaðningur, sagði Rúnar ánægður með heimtimguna.

Fleiri fréttir