Sauðburður í september
Sá fáheyrði atburður gerðist nú í september að átta lömb komu í heiminn á Narfastöðum í Viðvíkursveit í Skagafirði. Að sögn Rósu Maríu Vésteinsdóttur er ekki alveg vitað hvað kom til en líklega hafa rollurnar viljað dreifa álagi sauðburðar þar sem mikið er að gera á vorin.
-Við hjónakornin reynum með þessu að skapa okkur sess á næsta þorrablóti, og geri aðrir betur, segir Rósa og hlær. –Það þýðir ekkert annað en að taka þessu létt þegar náttúran tekur svona fram fyrir hendurnar á manni. Hvað um lömbin verði segir Rósa að nú verði að sjá hvernig viðri í haust og þá hvort um jólalömb verði að ræða. –Ég vona alla vega að ekki verði um páskaslátrun að ræða, segir Rósa sem segir að á bænum sé ræktað svo kallað sparifé þar sem einungis 30 rollur séu á bænum og því má segja að þetta upphlaup nú sé há prósenta í þessu tilfelli.