Sauðþrár hrútur forðaði sér á sundi

Við smölun af Tungudal til Þverárréttar í Fljótum s.l. laugardag kom upp gott dæmi um "sauðþráa" í hrútlambi  Arnar bónda í Ökrum. Frekar en láta REKA sig til réttar, lagði hrússi til sunds frá vesturbakka Stífluvatns, og svamlaði dágóða stund. Eitthvað hefur honum leiðst volkið, og snéri til sama lands, en þá voru allir gangnamenn á bak og burt.

 

Uppgjafa bændur sem voru á ferð um þjóðveginn austanmegin vatnsins, sáu hvíta klessu í fjöruborðinu og fóru að athuga um greyið.  Hrúturinn var hinn frískasti, en náðist þó strax, fékk um hálsinn forláta hálsklút af einum smalanum, og var leiddur til byggða eins og fínn kaupstaðahundur, þar sem eigandinn tók  glaðbeittur við verðmæti sínu.

Vinsamleg ábending til smala framtíðarinnar, gott er að vera með trefil þegar farið er í göngur.

/SK

Fleiri fréttir