Seal Travel hefur starfsemi

Selasetur Íslands
Selasetur Íslands

Í dag opnar formlega ferðaskrifstofa í eigu Selaseturs Íslands á Hvammstanga. Hefur hún fengið heitið Seal Travel, og selur pakka með hópafslætti til ferðamanna á netinu.

 Undirbúningur opnunar Seal Travel hófst fyrir tæpum tveimur árum, og tilgangur hennar er að auka ennfremur þá góðu samvinnu sem einkennir ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra, auka framlegð hvers ferðamanns, og jafna tekjustreymi ferðaþjónustuaðila yfir árið. Farið er af stað með takmarkaðan fjölda pakka til að byrja með, en við bjóðum alla áhugasama velkomna til samstarfs. Við viljum sérstaklega biðja áhugasama aðila innan Húnaþings vestra að hafa samband við okkur, en horfum þó til alls Norðurlands vestra sem okkar starfssvæðis.

Guðríður Hlín Helgudóttir hefur verið ráðin til að stjórna Seal Travel, auk þess að aðstoða framkvæmdastjóra. Hún hefur unnið árstíðabundið, og með skóla, á Selasetri Íslands frá og með 2012. Gauja lauk BA námi í ferðamálafræðum frá Háskólanum á Hólum vorið 2016, en hefur einnig mikla starfsreynslu innan ferðaþjónustugeirans. Upplýsingamiðstöð Húnaþings vestra á Selasetrinu mun að sjálfsögðu, hér eftir sem hingað til, starfa af heilindum og hlutleysi með hag alls Húnaþings vestra að leiðarljósi. Starfsemi Seal Travel hefur engin áhrif á starfsemi upplýsingamiðstöðvarinnar, þar sem Seal Travel selur eingöngu á netinu.

Við bindum miklar vonir við Seal Travel og hlökkum til framlags ferðaskrifstofunnar til áframhaldandi sóknar í Húnaþingi vestra.

Kíkið á www.sealtravel.is

/
Fréttatilkynning

Fleiri fréttir