Sebastian Furness verður aðstoðarþjálfari
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
06.02.2014
kl. 09.57
Sebastian Furness hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hjá Tindastóli. Sebastian mun þar vinna með Bjarka Má Árnasyni sem var ráðinn aðalþjálfari á dögunum. Sebastian er markvörður og hefur leikið við góðan orðstír með Tindastóli síðust tvö ár en hann á 40 leiki að baki með liðinu.
Sebastian mun standa í marki liðsins í sumar, en það er mikill fengur að fá þennan reynda og góða markvörð til liðs við Tindastól á ný. Sebastian er ekki aðeins góður markvörður heldur einnig gríðarlega traustur félagi, liðsmaður góður og leiðtogi. Sebastian hefur dvalið erlendis í vetur en er væntanlegur til Íslands í apríl.
Fréttatilkynning