Segir Reykjastrandarveg í ömurlegu ástandi

Frá Reykjaströnd/Mynd: BÞ
Frá Reykjaströnd/Mynd: BÞ

Á mbl.is í dag, segir Viggó Jónsson, sem er í sveitarstjórn Sauðárkróks að Reykjastrandarvegurinn sé í ömurlegu ástandi og að það sé „algjörlega fráleitt að fólkinu sem býr við þennan veg sé boðið upp á þetta.“

Vegurinn er sá malarvegur sem flestir fara um í Skagafirði og er hann mjög holóttur. Pálmi Þorsteinsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Akureyri, segist í samtali við Morgunblaðið, telja það ólíklegt að lagt verði bundið slitlag á veginn, sökum fjárskorts. Það standi þó til að hefla hann í náinni framtíð.

Fleiri fréttir