Selasetur Íslands hlýtur styrk
Selasetur Íslands hlaut 1,5 milljón kr. styrk sl. föstudag þegar afhending styrkja úr Þróunarsjóði Landsbankans og iðnaðarráðuneytisins fór fram í Listasafni Íslands. Þetta var fyrri úthlutunin úr sjóðnum en alls bárust 113 umsóknir um styrki og ákveðið var að veita alls 20 styrki að þessu sinni. Selasetrið sótti um styrkinn undir verkefninu Húnaþing frá hjartanu - einstök upplifun vor og haust.
Lýsing á verkefni Selasetursins er eftirfarandi:
„Til að vinna að því að ferðaþjónustuaðilar í Húnaþingi vestra sameinast um að skapa upplifanir fyrir ferðamenn utan háannatíma. Unnið verði m.a. með náttúru , hestamennsku, réttarstemmingu, veiðar og mat.“
Þróunarsjóðurinn var stofnaður í tengslum við verkefnið Ísland allt árið. Markmið sjóðsins er að lengja ferðamannatímabilið á Íslandi, með því að styrkja þróun afurða og upplifana utan háannatíma ferðaþjónustu og auka þannig arðsemi fyrirtækja í geiranum. Samtals lögðu stofnendur 70 milljónir í þróunarsjóðinn, 40 milljónir frá Landsbanka og 30 frá iðnaðarráðuneyti sem úthlutað skildi í tveimur úthlutunum.
Hér má lesa nánar um styrkveitinguna á vef iðnaðarráðuneytisins.